Stjörnufræði Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
föstudagur, 03 febrúar 2012 08:30

Við upphaf Stjörnufræðinnar í 9.bekk fengum við Snævarr Guðmundsson stjarnvísindamann í heimsókn með heilt Stjörnuver í farteskinu, (sjá nánar:http://natturumyndir.com/). Stjörnuverið er einskonar sýndarveruleiki þar sem ferðast er um óravíddir alheimsins og fyrirbæri gerð raunveruleg með hjálp forrits og fyrirlesturs. Nemendur upplifðu t.d. hljóð frá Sólinni, einkennum Halastjarna og hvernig jarðflekarnir breytast á Jörðinni í gegnum árþúsundin. Lífsskilyrði og lífsform voru nemendum hugleikin og vakti heimsóknin mikinn áhuga á stjörnufræði sem og almennum vísindum.
JKÍ 

 

 
Skákdagur Íslands Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
mánudagur, 30 janúar 2012 12:23

Fimmtudaginn 26. janúar var skákdagur Íslands haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn, á 77 ára afmælisdegi stórmeistarans Friðriks Ólafssonar.  Af því tilefni voru nemendur í Ölduselsskóla hvattir til að nýta vel taflborð skólans og tefla eins og eina skák í tilefni dagsins.
Einnig höfðu leikskólinn Seljaborg og Ölduselsskóli  samráð um að gera þennan dag eftirminnilegan fyrir unga verðandi skákmeistara. Nokkrir nemendur úr Ölduselsskóla sem æfa skák hjá Skákakademíunni voru fengnir til að koma í heimsókn á leikskólann Seljaborg til að tefla þar skák við áhugasama unga skákmenn leikskólans. Ölduselsskóli fékk til liðs við sig Jóhann Hjartarson stórmeistara í skák til að gera daginn enn eftirminnilegri fyrir þessa ungu nemendur.
Það var ótrúlegt að sjá hversu öflugir þessir ungu skákmenn voru í fjöltefli við Jóhann Hjartarson og alveg ljóst að nemendur, þrátt fyrir ungan aldur kunnu vel mannganginn. Einn ungur skák maður Mykhaylo Kravchuck í 3. KEF samdi um jafntefli við stórmeistarann og fékk að launum mikið hrós frá Jóhanni. Jóhann hafði á orði hversu frábært væri að sjá gróskuna í þessum ungu og efnilegu skákmönnum í bæði Ölduselsskóla og Seljaborg. Þá eiga starfsmenn Seljaborgar hrós skilið fyrir flott starf í þágu skákíþróttarinnar.Við óskum ungum og efnilegum skákmönnum í Seljaborg og Ölduselsskóla til hamingju með daginn og látum myndirnar tala sínu máli um áhugann og gleðina sem ríkti meðan telft var.

 


 
Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 26 janúar 2012 14:18

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 20