|
TX-10 Verkefni með smábókinni TX -10
Málfræðigreining
Vefur frá Námsgagnastofnun. Forritinu er ætlað að þjálfa nemendur í málfræðigreiningu.
Lesheimur
Vefsíðan er bæði á ensku og íslensku.
Ensku síðurnar eru hugsaðar fyrir útlendinga sem eru að æfa framburð,lestur og tal. Íslensku síðurnar eru fyrir þá sem eru að æfa lestur, tal og framburð og einnig fyrir kennara sem eru að undirbúa sig undir lestrarkennslu.
Stafaleikir Búa
Á vefnum eru æfingar til að þjálfa nemendur sem þurfa mjög hæga innlögn og mikla endurtekningu til að ná tökum á undirstöðu lesturs. Aðeins er fengist við tíu bókstafi, tengingu tveggja hljóða og 15 algengustu orðmyndir.
Að skrifa rétt
Vefur frá Námsgagnastofnun. Markmiðið með vefnum er einkum að þjálfa nemendur í að lesa og stafsetja texta með samhljóðasamböndum.
Stafsetning
Vefur Námsgagnastofnunar. Vefefnið Gagnvirkar æfingar í stafsetningu er einkum ætlað mið- og unglingastigi. Það byggir annars vegar á æfingum úr gömlu stafsetningarbókunum og hins vegar íslenskum þjóðsögum, kvæðum og ævintýrum.
Málbjörg
Kennara- og kennsluefni fyrir unglingastig. Efnið á vefnum er ætlað kennurum sem kenna Mályrkju I, II eða III.
Ritum rétt
Vefur frá Námsgagnastofnun sem inniheldur stafsetningaræfingar einkum fyrir 9 - 12 ára nemendum sem eiga við stafsetningarörðugleika að etja.
Orðakistur Krillu
Þessi vefur er frá Námsgagnastofnun. Í vefefninu sem einkum er ætlað yngsta stigi grunnskólans er hægt að velja um æfingar þar sem nemendur geta þjálfað lestur orða sem ríma, lestur algengustu orða í íslensku, raðað orðum í stafrófsröð og fundið orð í orðagrind. Í ríminu og lestri algengra orða eru lykilorðin lesin.
Tákn með tali
Vefur sem ætlaður er til að styðja og efla fjölskyldur barna sem eru að byrja að nota TMT, að styðja og efla fagfólk í sömu sporum, m.a. starfsmenn leik- og grunnskóla, að auðvelda fjölskyldum og fagfólki aðgengi að táknum, að auðvelda notendum TMT að átta sig á útfærslu táknanna.
Upp með hendur
Vefur Námsgagnastofnunar. Stuttar ábendingar um hvernig nota má bókina, einkum hvaða atriði þarf að hafa í huga við myndun tákna. Á síðunni eru einnig myndbönd þar sem sýnd eru öll táknin sem eru í bókinni. Félag heyrnarlausra gefur þetta efni út.
Nýbúinn
Vefur sem nýst getur nýbúum og kennurum þeirra. Þarna eru m.a. gagnvirk verkefni fyrir nemendur.
|